Lífið í Kína

20.11.2008 16:50:18 / faddy

Lyftuferð út í geim! -eða næstum

Hafið þið farið tæpan hálfan km upp í loft á 66 sek án þess að vera í flugtaki??
Við höfum það!!!
http://i5.photobucket.com/albums/y162/cityz/Urban/ShanghaiWorldFinancialCenter5medium.jpg

Við förum í þessa byggingu alveg efst eða upp 100 hæðir! Þetta var rosaleg upplifun úff! Við fórum inn í mjög speisaða lyftu sem fór upp 492 m á 66 sekúndum og í loftinu á lyftunni var stór hringur með ljósum sem snérust í hringi hraðar og hraðar eins og í hringekju! Við fengum hellur og alles! Það má í raun segja að við séum með svipaða reynslu að baki og geimfarar 8) En jæja þegar upp var komið þá var hæðin alveg svakaleg, við sáum ALLA Shanghai, þetta var eins og að vera í flugvél að koma inn til lendingar, borgin skiptist í reiti og allt haha..:) Veggirnir hölluðu út á við svo maður sá framaf byggingunni!! Scary! Svo var gler í gólfinu svo maður sá niður 100 hæðir.. ekki mjög þægilegt! Mér (Addý) og Þór byrjaði að svima, svona eins og í tívolítæki, eftir smá tíma (við erum alveg á því að fólki er bara ekki ætlað að vera í þessari hæð!) en þetta var algjörlega þess virði og rosa sérstök upplifun:d

Á leiðnni í turninn lentum við í svakalegri bílferð!! Leigubílstjórinn sem var að keyra sagði á fullu, fucky fucky við okkur hló síðan.. svo hélt hann áfram og sagði "ríða" á kínversku og benti á allar stelpur sem voru á vegi okkar!! weirdóóó.. en neiiiiiii, þetta er aldeilis ekki búið því hann þurfti að leika ríðing... fyrir okkur með puttunum,semsagt að stinga einum putta í gegnum gat á hinni höndinni(þið vitið hvað ég á við).. "gamanið" var alls ekki búið því stuttu seinna, öllum til ánægju(NOT), byrjaði hann að stynja fyrir okkur. Hann hefur líklega ekki komið þessu nógu vel frá sér í byrjun með því að segja fucky fucky og benda á allt kvenfólk í kína þannig að hann ákvað að leika þetta fyrir okkur með hljóði líka:S..

já, svona er kína í dag.. eitt enn, hann spurði hvort við værum allir að sofa hjá addý eða bara ég.. vorum semsagt 3 strákar í bílnum! mjög spes gaur, vægast sagt...

Kínversku kennarinn okkar er æði, hún er 24 ára og þvílík dúlla. Við spurðum hana um daginn hvort hún drykki bjór, hún sagði nei mér líkar ekki við vín, svo spurði ég hvort hún drykki kók, hún sagði nei, svo spurði ég hvort hún drykki appelsínudjús, og hvað haldiði????? neibbb,, ekki heldur, hún vill frekar borða appelsinur heldur en að drekka safann!!!!! hahaha.. Hún drekkur bara vatn.. Svo finnst henni einnig leiðinlegt að elda og þvo þvott.. hverskonar kvennmaður er þetta eiginlega..hahahahaha.. síðast en ekki síst þá finnst þessari dúllu kærastinn sinn vera lítill og ekki svo sætur, en samt góður! Jahérna hér, svona er þetta hjá okkur!

Á þriðjudaginn var síðasti dagurinn í Kínerskri lögfræði og kennarinn okkar þar er líka svo mikið krútt.. Hún talar mjög bjagaða ensku svo það var keppst við að halda athyglinni í tímum og svo las hún alltaf beint upp af blaði og þegar hún leit upp þá leit hún upp í loftið eða á vegginn, sem sagt ekki yfir hópinn.. greinilega eitthvað feimin! En jæja í síðasta tímanum þá gaf hún okkur ölllum gjöf, lítil lukkudýr frá ÓL til að hengja á símana okkar.. Nema hvað eina stelpan í hópnum fékk marglitaða "demants" prýdda hárspennu:) Svo gaf hún okkur mandarínur og mjög spes ávöxt sem ég hef bara séð hér í Kína. (lítur út eins og Tómatur en er eins og risa plóma) Svo vildi hún endilega taka mynd af okkur til minningar..:p

Nancy ræstingarkonan okkar kom hérna að þrífa á mánudaginn.. ahh svo gott að þurfa ekki að lyfta litla fingri;) Nema hvað að hún hennti bara pilluspjaldinu mínu!:$ Það voru 4 pillur eftir.. veit hún ekki hvað pillan er?! En jæja.. þá vitiði það þið eigið von á "frændsystkini" á næstunni;) (Pabbi.. ég er að djóka)

En jæja nú höfum við sagt alveg hreint heilmargt.. ekki hægt að væla í okkur núna.. En við ætlum að væla í ykkur og heimta fleiri komment!!! Tugir skoða síðuna okkar á dag en svo fengum við bara 4 komment.. hvað á það að þýða?! Ef þið viljið fá fleiri blogg þá verðiði að vinna ykkur inn fyrir því hehehe;)

STÓR koss og knúúúúúús


» 20 hafa sagt sína skoðun

09.11.2008 07:26:18 / faddy

Fjúffffff... Brjálað að gera;)

Hallóóóóóóóóó.. Loksins er komið nýtt blogg:):klikk:

Það er náttúrulega alltaf mikið að gerast hérna hjá okkur í kína..
Ég er búinn að pressa og pressa á Addý að skrifa nýtt blogg en hún segist ekki nenna því vegna þess hversu lengi hún er að skrifa, hún kann ekki alveg á lyklaborðið á tölvunni sinni, keypti sér nefnilega tölvu hérna úti með kínverskum táknum sem við þekkjum ekki neitt. En nóg um það;):haha:

Núna er hitinn í Shanghai 15 gráður:s við erum alvega að frjósa;).. samt ekki, alveg nógu heitt, eru samt 30 gráður í tælandi þar sem við verðum eftir u.þ.b. 25 daga:p

Ef ég stikla á stóru í sambandi við hvað við höfum brallað hérna í Kína þá höfum við farið örugglega 10 sinnum á hina ýmsu markaði undanfarna daga. Það sem oftast gerist á þessum mörkuðum er að við lendum í einhverjum snarrugluðum kínverjum, oftast stelpum, sem bjóða okkur peysur á 10 þús ísl. við bjóðum þá 200 kr ísl í þær.. Þá er sagt við okkur: jú kill mýýýýý.. Þannig að ég hef tekið upp þá aðferð að mæta á markaðina og segja bara: you kill me, you not my friend.. þá vita þau að maður er ekki nýr á nálinni og bjóða fyrsta verð á peysu 9500 kr ísl...
Það sem stóð upp úr í síðustu verslunarferð eru náttúrulega snyrtivörukaupin hennar addýar.. Hún fékk svo mikið fyrir lítinn pening (þetta myndi hún segja)
Ég mundi segja: hún eyddi ógeðslega miklu í eitthvað snyrtivörudrasl...hehehehe...
En þetta voru klárlega góð kaup hjá henni, sem ég reyndar prúttaði því addý er, satt besta að segja, ekki sú besta að prútta.. Alveg ágæt sko, en ekki sú besta;)
Reyndar heldur maður alltaf að það sé verið að gefa manni geggjað verð en eftir miklar pælingar og prúttferðir þá verður maður klárari og áttar sig á að maður getur fengið margt helmingi ódýrara heldur en maður hélt í fyrstu. Enda gerist það æ oftar að við löbbum út úr búðunum með blótandi kínverja á eftir okkur því við bjóðum svo lágt verð, þeir verða bara móðgaðir..hehehehe..geggjað!

Ég keypti The office, seríu 1-4, á 2 þús ísl. á einum markaðnum.. held að það sé eitthvað það sniðugasta sem ég hef keypt mér í þessari ferð.. Kannski fyrir utan gufustraujárnið og handhleðsluGSM-tækið. Rosalega sniðugt ef maður á ekki bíl og býr hvergi, semsagt ef maður kemst ekki í rafmagn, þá hleður maður með handafli:D..

Það er allt í Kína rándýrt þessa dagana því krónan er að skíta upp á bak, kemur ekki í veg fyrir að við verslum, en samt er hún að skíta upp á bak..
Það er kannski ekkert miðað við frænda minn á íslandi sem átti Range Rover, 400 fermetra hús, eina penthouse íbúð og 5 konur:$:$.. Hann býr í pappakassa á barónsstíg núna..8|8| Þannig að ég kvarta ekki..

Addý labbaði á ljósastaur síðustu helgi.. hún slasaðist ekkert en það slökknaði á staurnum!!! :haha::haha:

Addý er búin að vera geðveikt dugleg í ræktinni..
Ekki ég:)

Kínverjar eru hættir að taka myndir af okkur, þar sem við vorum svo vön allri þessari athygli þá tók ég myndir af addý og sendi á playboy.com.. Getið séð þær ef þið kaupið aðgang;)

Það var ekkert smá fyndið atvik um daginn: við vorum að versla, þá sáum við par vera að rífast við þrjár búðarkonur hjá þvottavörunum.. VIð vorum alveg gáttuð á þessu en parið fór fljótlega í burtu... það var stutt, því kallinn kom askvaðandi aftur, tók poka með þvottaefni í og henti í hausinn á einni búðarkonunni..hahahaha.. (slasaðist ekkert, rotaðist en var byrjuð að vinna innan 5 mínútna)

En nú ætlum við, ég, addý og þór, að fara á Nanjing lu( lu þýðir road) sem er stærsta verslunargatan í shanghai, ekkert prútt þar sko... en við látum inn myndir á eftir..
Á nanjing lu getum við skotið úr alvöru skammbyssum.. vuuuhúúúúú..

P.S. ég er ekki búinn að raka mig í eina og hálfa viku, ekki búinn að tannbursta mig í viku, fór reyndar í sturtu á föstd.. en þeir sem vilja sjá mig svona skeggjaðan geta pantað flug á dohop.com. Við erum í shanghai, ekki singapore eða eitthvað svoleiðis, sumir virðast ekki vita hvar við erum;) Eða bara skoðað myndir, það er ódýrara...


Kv. Faddý





» 5 hafa sagt sína skoðun

24.10.2008 05:57:34 / faddy

Halloween og Beijing Opera

Þá er kominn föstudagur, aftur, og þá slöppum við af og höfum það gott.. Yndislegt að vera ekki í skólanum! Klukkan er 13 hjá okkur og ég var að koma úr Pilates og er að fara að gera ritgerð og Fannar er með strákunum á klæðskeramarkaðnum að sækja jakkafötin sín:haha: Ég hlakka svo til að sjá þau.. það er eitthvað við menn í jakkafötum;)

Það sem er svona helst í fréttum hjá okkur er að Ásta er farin:whut: Við fórum öll útað borða rosa fínt með henni á fimmtudaginn síðasta og svo í karíókí! Það var ekkert smá gaman, þá borgum við bara 200 kr á mann og erum með sér herbergi með flatskjá og sófum og auðvitað mikrafónum! Algjör snilld, þarna vorum við að æra hvort annað til klukkan að verða 5 um nóttina:lol:

Svo á laugardaginn fórum við á markað og ég fékk LOKSINS að fá smá útrás og versla mér fuullt! Keypti mér fullt af Abercrombie bolum og peysum og stuttbuxum + chanel gloss, mac gloss, bobbi brown augnskugga, augnhár og dior maskara á einungis 10 þúsund kr! Enda hef ég brosað hringinn alla vikuna:haha::haha:

En þá yfir í aðal fréttirnar.. á miðvikudaginn kom til okkar í skólann fréttamaður frá Rúv,  hann Borgþór. Borgþór er í fríi hérna í Kína en ákvað að fjalla aðeins um íslendinga hér í Shanghai svo hann mun fjalla um skiptinám og starfsemi Össurar. Hann myndaði okkur í tíma og tók svo smá viðtal við mig, Fannar og Þór þar sem við vorum spurð út í skiptinámið og hvernig okkur líkaði dvölin í Kína. Við vorum frekar kjánaleg enda ekki með reynslu af sjónvarpsviðtölum þannig það er BANNAÐ að hlægja af okkur!! En þetta á víst að koma í fréttatimanum í næstu viku.. einhverntímann eftir miðvikudaginn svo jeii þið fáið einhverjar skemmtilegar fréttir í sjónvarpið, annað en krepputal!:)

En nú fer senn að líða að lok Október og vitiði hvað gerist þá....?

 http://www.history.com/minisites/halloween/images/halloween_image.jpg

Mikið rétt.. Halloween!! Í tilefni þess erum við hópurinn að fara að klæða okkur upp í búninga á morgun og fara í 3 tíma bátasiglingu með fríu áfengi og svo er farið með okkur í eftirpartý fram á rauðanótt! Þetta verður æææði! –Eg er samt ekki enn búin að ákveða hvað ég ætla að vera..  any suggestions?:$

Svo ætlum við að enda helgina voða prúðlega, svona fyrir foreldrana, og fara að sjá The Beijing Opera! Jább.. í eina frægustu óperu heims! – Strákarnir eru tilbúnir með Golf, póker og fleiri leiki í símunum sínum hehehe:d

Við setjum inn myndir frá helginni á sunnudaginn..  bless í bili

p.s bara tveir mánuðir til jóla!!

pp.s Við erum komin með tölvusíma og númerið er 499 -0916

 


» 14 hafa sagt sína skoðun

12.10.2008 06:43:07 / faddy

Loksins annað blogg!!

Jæja, það er búið að vera brjálað aðgera hérna síðustu dagana en við ætlum bara að líta stórt yfir skammt!!:o

Á föstudögum er náttúrulega frí hjá okkur í skólanum og ákváðum við því að fara á saumamarkað. Ég veit hvað þið hugsið nú!? Saumamarkað?!! já, rétt.. saumamarkað!;) Þetta er semsagt markaður eins og kolaportið nema á 3 hæðum og með miklu fleiri básum og EINUNGIS jakkaföt, kjólar og þess háttar klæðnaður.
Við keyptum samt ekkert en við létum samt sjá okkur sem er mjög mikilvægt á mörkuðum í kína, sjá sig og sjá aðra því þeir reyna sko aldeilis að RÆNA mann ef ekki er vel fylgst með.
Þetta væri nú ekki frásögu færandi ef jakkafötin væru ekki jafn ódýr og raun ber vitni!! Við fáum jakkaföt á 350 til 500 yuan sem er, samkvæmt rándýra kreppugenginu, 5000 þús til 7500 kr íslenskar.. vuuhúúúúú.. jibbíííííí... aaaaaarrrrrííííííííba.
Þannig að nú erum við að skoða jakkaföt, frakka, kjóla og allt sem okkur dettur í hug á netinu með það í huga að láta sauma á okkur. Þetta er voðalega pró hjá þeim, maður er mældur, svo kemur maður aftur til að máta og þá segir maður hvað betur má fara og þá eru loks fötin reddýýý...
Nú, þegar maður er í verslunarferðum þá gleymir maður oft að borða. Hungrið fór eitthvað að kraula í okkur þannig að við röltum út og sáum fuuuuullt af subbulegum stöðum þar sem við vildum ekki borða.
 Þá kom að okkur indæll indverskur strákur og rétti okkur miða á einhvern indverskan stað. Þangað fórum við og vitir menn, þessi staður var geggjaður, ekki bara þessi staður því allir staðir í kringum hann voru flottir og virkuðu vel á okkur:haha:  Þarna borðuðum við svo með bestu list.
Svona er kína á föstudögum. 8)

Nú halda sumir að bloggið sé búið og allir þurfi að bíða næsta bloggs í marga daga, neibb.. held nú ekki:!::!:
Á laugardeginum fórum við í borgarferð til Hongzou, vatnaborgarinnar, (minnir að hún heiti þetta:s) en það er sagt um þá borg að ef það er til himnaríki þá er þessi borg undir himnaríki. Það var samt eins himinn þarna og í Shanghai þannig að ég fer nú að efast um að himnaríki sé til. 
Sú ferð byrjaði með því að vakna snemma, sem var geggjað, ótrúlegt hvað getur verið gaman að sofa lítið.. Nú svo lá leið okkar í lest til borgarinnar, þar vorum við gripin af kínverja sem ég kalla Xui. Hann bauð okkur ferðina með bíl á 900 RMB, við prúttuðum á fullu við hann því lestin okkar sem átti að fara 9:30 var full og næsta lest áætluð 11:45. Eftir smá prútt þá samþykkti hann 770 RMB aðra leið fyrir 8 manns. VIð hoppuðum í leigubíl með honum, sem hann borgaði, og fórum út eftir 5 mín á miðri hraðbraut:s:s. Við vissum að ferðin tæki miklu lengri tíma en hann sagði okkur að bíða róleg sem við og gerðum. Meðan við biðum þá stóð Xui ásamt nokkrum vinum sínum út á götunni að húkka bíla..hehehehehe.. sniðugir menn, búa sér bara til buisness svona... Loks stoppaði bíll, réttara sagt rúta sem við hoppuðum upp í. Við neituðum að fara með áætlunarrútu og borga þetta verð þannig að við fengum farið á 700 RMB og um leið og við höfðum borgað þá fóru þeir og borguðu rútubílstjóranum og stukku út með nokkra seðla í vasanum...Sniðugt!!!:):):)
Hangzou er stór borg í suðvestur Kína. Það er eitt risastórt vatn þar við fjallgarðinn en samt í miðri borginni sem trekkir alla ferðamenn að og ekki að furða því þetta er geggjuð borg. Ýmindið ykkur ef tjörnin í Reykjavík væri 10 sinnum stærri með nokkrum eyjum á.. Hvernig er það??já einmitt, geggjað... en ég ætla að láta myndirnar tala..Veljið Myndasíða og þar veljiði 

markaðinn+dagsferð í hangzou


» 12 hafa sagt sína skoðun

08.10.2008 06:39:52 / faddy

Smá blogg:)

Ég vil byrja á því að óska elsku bestasta, frábærasta og sætasta Fannari innilega til hamingju með afmælið á sunnudaginn!:p

Við lentum hérna á laugardagsmorgun eftir 2 vikna skyndi heimsókn á Íslandi:$, og fórum beint heim í háttinn.. enda sólahringsferðalag að baki! Svo þegar við vöknuðum fórum við á æðislegan japanskan stað með Pétri og Þór þar sem maturinn er eldaður á risa pönnu fyrir framan mann og bragðast alveg unaðslega!:d Svo mætti fólkið í afmælispartý um 10 leytið og það var sko drukkið og skemmt sér! Allir á perunni.. nema aumingja Pétur sem er á sýklalyfjum og þurfti að vera vitni af öllu trúnóinu og látunum..8|  En þetta var æðislegt kvöld og allir skemmtu sér rosa vel!:haha:

Annars er rosa lítið að frétta héðan úr Kína..  jú það eru fleiri búnir að fá sér hjólJ OG við erum loksins komin með netið!! Svo nú verður bloggað oft á dag! (allavega oft í viku)Við fengum okkur ræstingakonu sem kemur tvisvar í viku og þrífur allt og vaskar upp og fyrir 300 krónur á tímann! Sweeeet!!8) Skólinn er ágætur, fyrir utan pissulyktina og hörðu stólana, en þetta er hluti af lífsreynslunni!  Annars er ég heima núna að læra fyrir lögfræðina á meðan strákarnir eru í tíma, ég þurfti að segja mig úr tveimur kúrsum því ég var með of margar einingar.. –munar ekki nema 100 þúsund krónum í skólagjöld!:!:

Jæja ég ætla að halda áfram að læra... næsta blogg skal vera frá Fannari.. hann er að verða aðeins of latur hérna í Kína :lol:

Koss og knús!

p.s ég er að hlaða inn nýjum myndum


» 5 hafa sagt sína skoðun

18.09.2008 15:36:43 / faddy

Nýtt blogg!! :)

 

Loksins loksins loksins!

Við viljum biðjast velvirðingar á bloggleysinu! Við bara höfum ekki komist í netsamband síðan í Peking! En nú hefst sögustundin...

Við lögðum af stað kl 9 um morguninn með tveimur guidum sem við borguðum fyrir að keyra okkur að Kínamúrnum. Innifalið í verðinu var heimsókn í þrjár verksmiðjur.. Eina sem býr til kínverska vasa, silki og svo jade steina verksmiðju sem er happa steinn hér í KínaJ

Mér fannst mjög athyglisvert að skoða kínversku vasana og sjá hvernig þeir eru búnir til..!




Þeir byrja á því að beygja málm á kopar vasa

Svo mála þau með penslum inn í myndirnar með málningu sem er eins og sandur.. Svo er þetta brennt og kælt þrisvar sinnum og vola! Kínverskur vasi hvorki meira né minna! :D

Jæja svo fórum við loksins að KLÍFA Kínamúrinn! Ég hafði ekki hugmynd að þetta væri svona erfitt! Esjan hvað sko! En við tókum þetta með tropmi og fórum eins langt og hægt var, múrinn er sko í bútum fyrir þá sem vissu það ekki;)


                                                              

 





Svo daginn eftir lögðum við leið okkar í Beijing Zoo þar sem við sáum fullt af dýrum! Pöndurnar eru svo sætar! Þær eru eins og í teiknimyndum, sitja og borða bambuslauf og leika sér!





Svo á sunnudeginum tókum við lestina til Shanghai.. Það var visst menningarsjokk! Það eru 4 saman í klefa og kojur, svo er matarsvæði þar sem við settumst og fengum okkur bjóraJ Við Fannar fórum svo upp í rúm um 11 og steinsváfum þessa 13 tíma enda er bjórinn gott svefnlyf;) Það voru ekki allir svona heppnir að ná að sofa alla leiðina:/

En við erum byrjuð í skólanum og það er bara ágætt, við erum í kínversku 3 tíma á dag sem er gamanJ Við erum líka komin með frábæra íbúð og búum með Pétri Darra og Þór og sambúðin gengur bara rosa vel! Nema eitt, við erum ekki með netið og fáum það ekkert fyrr en í fyrsta lagi í næstu viku því miður! Kemur sér mjög illa þar sem ég er í fjarnámi:/ En Snorri og Ásta eru svo góð að leyfa mér að hangsa hérna á netinuJ

 Ég verð að koma með annað blogg um íbúðina og setja inn myndir og svonaJ Algjör drauma íbúð!

Koss og knús á alla! Sérstaklega elsku Siggu mína sem var að eignast litla prinsessu! ;*

Love

Addý og Fannar

 

 


» 15 hafa sagt sína skoðun

04.09.2008 20:57:13 / faddy

Komin til Beijing

Ni Häo!

Þá erum við loksins komin til Peking eftir margra mánaða tilhlökkun! Við, ég Fannar og Ísak, lentum hérna á þriðjudagsmorgun eftir 16 tíma flug frá London, sem hljómar kannski hræðilega en var ekkert mál! Við flugum með Etihad og þar var sko þjónustan í lagi! Við fengum þriggja rétta máltíð sem var bara furðu góður matur, allt áfengi var frítt, einnig fengum við sokka, eyrnatappa og svona fyrir augun! Svo var ekki verra að við vorum öll með sjónvarp fyrir framan okkur með endalausu sjónvarpsefni og leikjum og það var fjarstýring af þessu öllu saman í sætinu sem var einnig sími! Talandi um tækni;)
Restin af hópnum var að koma í beinu flugi frá London og ætluðum við að reyna að hittast einhversstaðar á þessum risa flugvelli! -við pöntuðum sem sagt flugin í sitthvoru lagi  fyrir löngu síðan.. Heyriði haldiði að við séum ekki bara að sækja töskurnar okkar á sama tíma á belti hlið við hlið! Þetta er svo lítill heimur!:lol:

En já við héldum þá bara öll saman upp á hótel og komum okkur fyrir.. svo fórum við á McDonalds í fyrsta skipti af ábyggilega 120! Veðrið hérna var kom algjörlega á óvart, 27° og glampandi sól! Ekki leiðinlegt:) Restin af þeim degi fór svo bara í að sofa og hvíla okkur. Daginn eftir röltum við í forboðnu borgina að skoða höllina og torgið. Það var svo skrítið og fjarstæðukennt að standa þarna á stað sem maður hefur séð í svo mörgum myndum, teiknimyndum og skoðað myndir af! Æ, soldið erfitt að lysa þessu;)

Við hittum svo loks Gunna og Haffa og skelltum okkur öll á tjúttið og það kom mér mjög á óvart hvað það var mikið fjör á miðvikudagskvöldi! Þvílíku klúbbarnir opnir og hægt að djamma til 6! Við byrjuðum á að fá okkur bjór á bar sem við prúttuðum niður!! haha.. Fengum bjórana á 10 (125 kr) og Mohito á 20 (250 kr) Ekki slæmt það! Dagurinn í dag fór þar af leiðandi í þynnku og rólegheit, ég og Snorri C erum byrjuð í fjarnámi frá Bifröst svo ég var að læra í dag:$

Á morgun erum við svo að fara að skoða Beijing Zoo og stærsta sædýrasafn í heimi! Svo á laugardaginn förum við að skoða Kínamúrinn...! Get ekki beðið:)




Þangað til næst koss og knús!
Addý






» 54 hafa sagt sína skoðun

04.09.2008 20:16:28 / BlogCentral

Nýtt bloggsvæði á BlogCentral

Eigandi þessa nýja bloggs hefur ekki gefið út fyrstu bloggfærsluna sína. Viðkomandi er án efa í óða önn að velja sér flott útlit, aukahluti, hlaða upp myndum og semja meistaraverk til að færa á spjöld sögunnar. Við bjóðum viðkomandi að sjálfsögðu velkominn á BlogCentral!

» 0 hafa sagt sína skoðun


Heimsóknir
Í dag:  4  Alls: 12303
Klukkan
Talning
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1209 dögum
Fannar á afmæli:)
Talning
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1143 dögum
Addý á afmæli:)
Talning
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1147 dögum
Við förum til Tælands!:)
Talning
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 1125 dögum
Við komum heim